Heildsala Northwear er umboðs- og dreifingaraðili á Íslandi fyrir LEE, WRANGLER, STOOKER, HERO og HARRIS TWEED OF SCOTLAND.
Forsíða
FÖT Á FÓLK
Einkennis- og starfsmannafatnaður er okkar fag en samstarfsaðilar okkar eru skandinavískir, þýskir og breskir framleiðendur sem hvergi slá af í gæðum. Northwear hefur þjónað íslenskum markaði í yfir 20 ár og listi viðskiptavina okkar segir trúlega meira en nokkuð annað um fyrir hvað við stöndum.
Eigendum og starfsfólki Northwear er umhugað að sýna gott fordæmi og því vinnum við eingöngu með framleiðendum sem vinna í sátt við umhverfið og sýna starfsfólki sínu tilhlýðilega virðingu með sanngjörnum launum og góðri vinnuaðstöðu. Meginhluti þess fatnaðar sem Northwear selur er framleiddur í Evrópu.
Hafðu samband og fáðu tilboð eða aðstoð með hugmynd!